|
|
12.12.2005 15:22:06 / frimann
Já góðan og blessaðan. Ég tel það happadrýgst að byrja þessa
bloggfærslu á einhverju leiðinlegu og taka svo upp léttara hjal í
lokin. Ég fór í LUNDAR-mat annan eða þriðja mánudaginn í röð, það
var geðveikt fyrir utan bragðið af matnum það var rétt tæplega
sæmilegt. Þá er leiðinlega partinum lokið og skemmtunin getur
byrjað. Ohh nú rétt í þessu gerði ég mér grein fyrir því að þótt
maður ýti ekki á shift og enter þá kemur samt bara eitt línubil en
ég var að gorta mig af því í síðstu þarsíðustu færslu að ég væri
búinn að læra að gera bara eitt línbil en það virðist vera einskis
nýtt nú á þessum allra síðstu og jafnframt verstu tímum. Annars er
allt gott að frétta sko, fyrir utan þá augljóstu staðreynd að á
miðvikudaginn í síðustu viku var ég reiðari en ég hef verið áður í
þessu jarðneska lífi mínu þegar Manchester United datt út úr
Meistaradeildinni með skömm mér tókst þó að hemja reiði mína nokkuð
vel en það lágu því miður þrjú glös í valnum, eða rétt er að sagt í
ruslafötunni brotin. Nú síðasliðin 3 ár og hálfu betur hef ég
stundað nám við Menntaskólann á Akureyri og hef ég á hverjum
einasta morgni velt því fyrir mér afhverju í ands... fjarvistir
kennara standa ekki alltaf á upplýsingaskjánum en þær eru bara
hluti af einhverju powerpoint showi þarna. Þegar ég skunda
galvaskur í skólann á morgnana er mér alveg nákvæmlega sama (og ég
fullyrði að ég tala fyrir munn fleiri) þó svo að Kristján Edelstein
sé fjarverandi í tónlistarskólanum eða að 4.X ætli að vera með
einhvern aukatíma klukkan 16:10 á þiðjudögum og fimmtudögum auk
þess sem mér og vonandi flestum nemendum skólans hefur verið gert
það nokkuð ljóst að matseðill mötuneytis LUNDAR vhf. sé á
muninn.is, en já ég hef ákveðið að hætta að kvarta yfir þessu og
einbeita mér að einhverju öðru mismikilvægu. Eftir einungis örfáa
daga hefst jólafríið mitt loksins, en það verður á föstudaginn í
þessari viku sem þýðir að vísu að ég þarf að skrópa á mánudaginnn
og þriðjudaginn en það er allt í lagi því ég reikna með því að
ekkert merkilegt muni fara fram undir þaki menntastofnunarinnar
fornu þessa daga eða ég vona það allavegana. Í staðinn fyrir að
mæta í skólann ætla ég að eyða tíma í höfuðborginni eða vinna á
Heilbrigðisstofnunni á Blönduósi en það fer allt eftir framboði og
eftirspurn á starfskröftum mínum eða reyndar bara eftirspurn. Hey
ég nenni þessu ekki lengur, bæjó Þetta er Frímann Haukur Ómarsson
sem talar frá Akureyri
»
11.12.2005 19:40:45 / frimann
Ég hef ákveðið að gera eins og allir hinir í heiminum, njótið
vel
Kommentaðu nafninu þínu og...
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um
þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt
Það er að vísu alveg gríðarleg áhætta að setja svona því það gæti
komið í ljós að ég eigi enga vini þannig að ég hvet fólk til að
reyna að láta mig lifa í þeirri trú að ég eigi einhverja og
kommenti hér.
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akreyri
»
28.11.2005 22:50:14 / frimann
Góðan dag, í tilefni þess að í dag er mánudagurinn 28. nóvember hef
ég því ákveðið að drita niður nokkrum misvel völdum orðum hér á
þetta ógnarvefsetur mitt. Ég var að læra að gera einfalt bil á
þessari síðu og mun ég því nota það óspart um komandi ár. En þetta
er ekki það eina sem ég hef lært nú síðan síðasta færsla var
skrifuð, ég hef m.a. læra oggupons í líffræði sem var einmitt
prófað úr í morgun og jafnvel eitthvað í stærðfræði líka en úr
henni verður prófað stundvíslega klukkan 10:00 í fyrramálið, þó svo
að ég reikni með því að þetta próf muni ekki gilda til
lokaeinkunnar þar sem lélegasta hlutaprófið gildi eigi. Í dag
gerðust undur og stórmerki en þá fór ég í fyrsta skiptið í
hádegismat á mánudegi á LUNDI-sjálfseignarstofnun á þessu skólaári
en þar var boðið upp á soðinn fisk og plokkfisk og er skemmst frá
því að segja að plokkfiskurinn bragðaðist með afbrigðum vel, en þar
með er ekki nema hálf sagan sögð því ég lagði líka land undir fót
og fór í kvöldmat og snæddi þar alvöru hakk en eins og alþjóð veit
er ekki oft sem það gerist. Þá er þessum
LUNDAR-sjálfseignarstofnunar matarumræðum lokið af minni hálfu en
lesendum er gefið orðið hér í skoðunum þar sem þeir geta tjáð sig
um þetta í rituðu máli. Ég tilkynni hérmeð með stolti að ég og
Kiddi Hlaupari höfum ákveðið að ganga í Ku Klux Klan og mega
svertingjar landsins því fara að vara sig (ég tek það fram að við
erum ekki rasistar í alvörunni og erum að grínast). Ég og hinn
Kiddi höfum ennfremur ákveðið að stofna Íslandsdeild
Likud-bandalagsins (sem er stjórnmálaflokur í Ísrael) og höfum við
ákveðið að reyna að fá uppgjafarformann alvöruflokksins Ariel
Sharon til þess að kenna okkur réttu handtökin. Hildigunnur
Þórsdóttir og Þóreyjar va að tilkynna mér það rétt í þessu að ég
væri á leiðinni í laufabrauðsútskurð næstu helgi að heimili
Silverfox og Svövu þvottahúsgellu en það verður væntanlega
leiðinlegasta stund lífs míns, nei smá grín það verður ábyggilega
geðveikt í ljósi svalleika allra aðila sem hlut eiga að máli þar á
meðal Ö en háaldraðir gestgjafarnir eru einmitt amma hans og afi.
Núna tel ég best að fara að læra fyrir stærðfræðipróf Þetta er
Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
11.11.2005 00:08:27 / frimann
Í tilefni af íslenskuverkefnisskilum á morgun hef ég ákveðið að
blogga, þ.e.a.s. vegna þess að það er miklu skemmtilegra að skrifa
allt það rugl sem manni dettur í hug (og þú neyðist til að lesa)
heldur en að skrifa eitthvað um einhverja Finnu úr hinni stórbrotnu
skáldsögu Sjálfstæðu fólki eftir Nóbelsskálið okkar eina. Nú
síðustu daga hefur verið óvenju mikið að gera hjá mér þar sem Gummi
gógó kíkti í heimsókn með stútfullan harðan disk af myndefni og hef
ég verið að fikta við áhorf á hinni gríðarvinsælu
unglingasápuvæluþáttum The O.C. og hefur mest allur tími minn
undanfarna daga farið í að glápa á þessa þætti, alltaf jafnmikið að
gera á LUNDI-nemendagörðum. Ég þori nánast að fullyrða að á mínum
áralanga skólaferli hef ég aldrei farið í jafn fáa tíma á einni
skólaviku og einmitt núna, en það var frí á mánudaginn og síðan
hefur verið mikið um kennarafjarvistir og ekki alveg laust við
yfirsof af minni hálfu. Annars er gaman frá því að segja að
vetirarfrí var haldið heilagt í Menntaskólanum á Akureyri síðustu
helgi og sá ég mér ekki annað fært en að skunda suður yfir heiðar í
góðra vina hópi. Fyrir sunnan gerðist margt og mikið en þar ber
hæst að nefna gríðargott labb mitt og Andrésar úr Vogatungu í
Kópavoginum (sem er ekki langt frá skiptistöðinni sálugu sem er
rétt hjá Kópavogskirkju og ef fólk hefur ekki áttað sig á
staðarháttum núna er það vinsamlegast beðið að hætta að lesa þetta
uppfræða sjálft sig um mikilvægari málefni) og í Keiluhöllina í
Öskjuhlíð en við vorum rétt rúmlega þær 20 mínútur ég áætlaði í
þetta eða 4x lengur (1klst og 20 mín fyrir þá sem eiga að vera
farnir að uppfræða sjálfa sig núna). Í Keiluhöllinni var staddur
ekki ómerkari maður en Egill Steinar Ágústsson ásamt fríðu
föruneyti en þau voru um það bil að klára keiluleikinn þegar okkur
bara að garði. Þessi ferð var þó ekki alveg tilgangslaus því ég
nappaði keiluskóm sem kom í ljós við nánari athugun að voru akkurat
í minni stærð. Eftir þetta gerðist margt og merkilegt sem tengist
miðbæ Reykjavíkur og ég nenni ekki að fara út í hér, enda langt um
liðið. Annars er næst á döfinni að kíkja á árshátíð
Heilbrigðisstonunarinnar á Blönduósi sem verður haldin hátíðleg nú
á laugardaginn og í framhaldi af henni verður rjúkjandi hress
dansleikur með risaStórsveit Geirmundar Valtýssonar sem mun, ef ég
þekki hann rétt, trylla lýðinn fram á rauða nótt og sé ég því
ástæðu fyrir alla eldheita skemmtanaunnendur að skella sér í
höfuðstað Austur-Húnavatnssýslu (tja og Húnavatnssýslna allra) um
helgina því fyrir einungis 2400 krónur fær fólk aðgang að dansleik
þessum, það er ekki á hverjum degi sem fólki býðst slíkt kostaboð.
Annars hef ég ákveðið að halda áfram með þetta blessaða verkefni.
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
01.11.2005 16:30:03 / frimann
Vildi bara vekja athygli á flunkunýrri skoðanakönnun sem mjög
mikilvægt er að landsmenn allir sameinist um að taka þátt í
»
19.10.2005 21:10:20 / frimann
Já góðan og blessaðan. Að vanda er alltaf jafnerfitt að byrja
svona bloggfærslur og hef ég því ákveðið að sleppa því í þetta
sinn. En annars hefur margt mismerkilegt dregið til tíðinda hjá mér
í gegnum dagana eða allt frá því þann 13. okt þegar síðast var yrt
á lesendur hér á þessari síðu. Það ber hæst að nefna að ég skellti
mér suður yfir heiðar og eyddi helginni í góðu yfirlæti í höfuðstað
landsins helsta nágrenni hans. Nú í þessari för minni hitti ég
margan góðan drenginn og valinkunnar hnátur líka og má þar meðal
annars nefna Geir Ólafsson, Gilzenegger að ógleymdum IDOL
stjörnunum Gunnari og Arinari. Hápunktur ferðarinnar (fyrir utan
það að sjá Geir Ólafsson) var þegar ég sá grænlenska LUNDARplebbann
vel í glasi í miðborg Reykjavíkur. Annars gerðist fátt sem er
orðum í eyðandi í þessari skemmtireisu.
Þessi vika hefur verið, að margra mati, ein sú svartasta í sögu
Mötuneytis Menntaskólans á Akureyri og sér ekki fyrir endan á
þessum ósköpum. Í gær var t.d. boðið upp á parmesanostabuff sem var
skelfilegt en komst þó ekki með tærnar þar sem hlýrinn (sem ku víst
vera fiskur) hafði hælana en það bauð brytaskömmin einmitt uppá í
kvöldmat, nú og hér hefur að sjálfsögðu gleymst að minnast á
falafel-pítuna sem var boðið uppá í hádeginu en í staðinn
fyrir buff ákvað nemendaGarðar að falafel með pítunni en fyrir
áhugasama er það einhver kjúklingabaunagrænmetisblanda sem lítur út
ekki ósvipað og kjötbolla og bragðast vægast sagt skelfilega. Þá er
þessum leiðinlega matarkvartparti lokið og bið ég alla
hlutaðeigandi aðila innilega afsökunar.
Nú rétt í þessu þegar ég rölti mína leið upp á 5. hæð LUNDAR
nemendagarða varð ég vitni af einum hræðilegasta atburði lífs míns
en þá stóðu svona á að giska 20 manns í stiganum og nágrenni hans
og tveir voru í boxi, en ég hef aldrei skilið, mun aldrei skilja og
vil aldrei skilja hversvegna í ands... þessir
helv... visarbúar þurfa að eyða öllum sínum tíma í stiganum,
að því er virðist eingöngu til að vera fyrir mér og pirra mig. Já
þá er þessum kvartparti líka lokið, en hann á fullkomlega rétt á
sér svo ég bið engann afsökunar á honum.
Í dag stofnaði ég í félagi við Júlíus Kristjánsson félagið FÁAA
eða félag áhugamanna um afsönnun afstæðiskenningarinnar en við
getum bara hreinlega ekki samþykkt það sem hún felur í sér en það
væri nú fullleiðinlegt að fara nánar út í það hér en áhugsamir
endilega hafið samband og ef vel gengur göngum við að
Nóbelsverðlaununum vísum. En núna ætla ég að fara að læra fyrir
líffræðipróf á morgun
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
13.10.2005 00:17:11 / frimann
Gott kvöld góðir hálsar nú eða góðan dag ef svo á við. Núna er
miðvikudagurinn 12 okt. að kveldi kominn eins og gerist
vanalegast á þessum tíma árs. Það er búið að snjóa hér á
þessari blessuðu eyri eins og hellt sé úr geðveikt stórri
fötu sem er hræðilegt einkum og sér í lagi vegna þess að ég er
ekki stoltur eigandi nagladekkja í augnablikinu er maður skelfingu
lostinn þegar krúsað er um götur bæjarins, en þetta stendur allt
til bóta.
Nú fyrr í kvöld hlammaði ég mér fyrir framan sjónvarpið og
horfði á landslið Svíþjóðar og Íslands leika sér í fótbolta og það
virðast ekki vera nein takmörk fyrir því hversu illa íslenska
landsliðið getur leikið og þá sérstaklega leikmaður sem ég hef
hatað svo árum skiptir og ber hið gríðarfallega nafn Auðunn og er
Helgason. Annars fór þessi leikur 3-1 fyrir Svíana og virðist
Svíagrýlan því enn vera að hrella okkur Íslendingana. Eftir leikinn
ætluðum ég, Steini, Jón og Andrés að gera eitthvað myndband fyrir
íslensku sem við áttum að skila síðasta mánudag en einhver uppgjöf
var í hópnum og leiddi röð tilviljana til þess að ég, Steini og Jón
enduðum á því að setja upp einhvern skáp heima hjá Steina og tók
það tvo og hálfan tíma, aðeins. En maður hafði svosem ekkert betra
að gera, nema kannski spila Striker of the month sem er btw. besti
leikur í veraldarsögunni.
Það er miður gaman frá því að segja að IDOL-stjörnurnar og
fyrrverandi vinir mínir Gunnar og Arinar komu í Séð og heyrt í dag
og voru þeir meira að segja á forsíðunni, en í viðtalinu hreykja
þeir sér af því að hafa samið lagið How is the weather saman tveir,
en virða að vettugi þátt minn í samningu þessa lags. Þeir eru
opinberlega núna verstu óvinir mínir og hefur Arinar verið rekinn
úr ættinni með skömm, nema náttúrulega að þeir biðjist afsökunar þá
verður þetta allt í lagi.
Hey já gaman frá því að segja að í kvöld pantaði ég í fyrsta
skiptið á þessari önn pizzu frá Dominos en ég fullyrði að þetta er
það lengsta tímabil sem ég hef náð án þess að panta pizzu frá
meistarakokkunum sem þar reiða fram þessar dýrindis pizzur, þ.e.a.s
tímabillið frá lendingu eftir Tyrklandsreisuna og þangað til núna,
rétt tæpur mánuður.
Núna hef ég tekið þá djörfu ákvörðun að fara að steinsofa svo ég
geti mætt hress og kátur í líffræði 203 hjá Þóri Haraldssyni á
morgun.
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
10.10.2005 22:14:08 / frimann
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir er komið jólaþema hér
á þessa síðu enda ekki seinna vænna komið fram í október. Enn
gleggri lesendur hafa væntanlega líka tekið eftir fjölgun á
linkunum hérna á vinstri kantinum. Ef einhver er ósáttur með veru
sína eða óveru þar er sá hinn sami vinsamlegast beðinn að segja
sína skoðun í skoðanir
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
09.10.2005 16:39:16 / frimann
Nei halló!!! Tja ég veit ekki með ykkur en ég segi allt ágætt bara
svo það sé á hreinu. Eins og vera ber hefur margt og mikið gerst í
mínu lífi undanfarna daga. Ber þar hæst að nefna 1H/4U samkomu, sem
var að vísu árshátíð pókerklúbbsins Hæstu hendinnar en það vildi
svo skemmtilega til að aðeins nemendur úr þessum tveimur bekkjum
létu sjá sig þar (með örfáum undantekningum) og er ekkert í
MA-ískum lögum sem bannar það. En þetta partý var svosem ágætt, að
vísu var það agnarögn styttra en upphaflega stóð til, en við
strákarnir ætluðum að mæta galvaskir klukkan 18:30 og byrja
gleðiskapinn og tjútta fram til 3 eða 4 en þess í stað mættum við
rúmlega 20:00 en ég treysti mér ekki til að segja hvenær við
yfirgáfum sökkvandi skútuna. Eftir þetta partý fór ég ásamt vel
völdum einstaklingum sem bera nöfnin Andrés, Ævar, Inga og
Valgerður í Sjallan og var það svona lala þangað til sanrruglaðir
sunnanmenn ákváðu að það eina rétta í stöðunni væri að stofa til
hópslagsmála en þá snáfuðum við út úr húsinu á mettíma. Því miður
varð þetta partý þess valdandi að ég missti af IDOL en þar stigu á
stokk ekki ómerkari menn en Arinar og Gunnar (aka Kindurnar) og
sungu sig inn í hug og hjörtu þeirra sem á hlýddu, en komumst ekki
áfram, mér og öðrum til mikillar undrunar.
Í gær var svo sennilega sá dagur í mínu lífi þar sem ég hef gert
hvað minnst, en samanstóð hann af tölvuíveringu, hangsi inní
herbergi hjá Svenna og síðast en alls ekki síst Friends-áhorfi og
er ég ekki frá því að þetta sé einn besti dagur lífs míns til
þessa. Mæli með www.leikjanet.is en það er hægt að
finna sér eitthvað til dundurs svo klukkutímum skiptir.
Í dag er svo stór dagur í mínu lífi en ég á einmitt afmæli um
þessar mundir og er einmitt akkurat 19 ára sem er alveg rosalegt.
Að vísu hefur þessi dagur ekki verið svo ýkja frábrugðinn öðrum
sunnudögum til þessa í mínu lífi, fyrir utan það að amma var með
dúk á borðinu þegar ég fór í kaffi til þeirra skjötuhjúanna áðan
það var geðveikt (sko að hafa dúk).
Núna hef ég tekið þá ákvörðun að reyna að læra eitthvað í efnafræði
þar sem ég hef ekki verið nógu iðinn við kolann í því fagi það sem
af er þessari önn og skil ekki bofs í því.
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
01.10.2005 16:37:58 / frimann
Þessi færsla er í boði Hröbbu þar sem hún klukkaði mig
1. Ég er einn mesti áhugamaður um sjúkrabíla á Íslandi (ásamt
Hermanni)
2. Ég er alltaf að reyna að hætta að drekka kók, það er
erfitt
3. Ég hata sandpappír mest af öllu í heiminum
4. Á þriggja mánaða tímabili horfði ég á Cool Runnings á hverjum
degi og horfi á hana reglulega enn í dag
5. Ég hef aldrei séð neina Lord of the Rings mynd
Að lokum hef ég ákveðið að klukka Tryggva, Arinar, Andrés og
Hildigunni. Ýkt óheppin þið!!!!
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
25.09.2005 16:34:21 / frimann
Nei halló og góðan dag! Að vanda er langt liðið frá síðustu
færslu og að sjálfsögðu er maður uppfullar af góðum sögum síðan
síðast, eða svona þannig já. Þess má til dæmis til gamans geta að
síðan ég skrifaði hérna síðast hef ég farið í aðra heimsálfu komið
aftur til Evrópu farið aftur til Asíu og síðan aftur til Evrópu.
Eins og glöggir lesendur hafa væntanlega áttað sig á fór ég til
Tyrklands ásamt stúdentsefnum Menntaskólans á Akureyri ásamt góðum
gestum og örfáum gangandi. Tyrklandsferðin var bara hin ágætasta
skemmtun og ekki orð um það meir. Þótt ótrúlegt megi virðast lifði
ég báðar flugferðirnar af þrátt fyrir ansi nákvæma útreikninga mína
og Andrésar í eðlisfræði í fyrra sem bentu til annars, en svona er
þetta bara það gengur bara betur næst.
Eftir þessa Tyrklandsreisu var förinni heitið á LUND
sjálfseingarstofnun sem á að heita viðhaldsfrí er það svo
sannarlega ekki þar sem bæði svalahurðin og glugginn á herbergi
5212 voru biluð við komu. Rétt eftir lendingu á Akureyraflugvelli
byrjaði svo skólinn og er ég víst í 4.bekk U ásamt misfríðu fólki
sem er upp til hópa ágætt. Í síðustu viku var busunin og
fengum við það verðuga verkefni að koma 1.H til vits og ára, það
gekk ágætlega og vil ég þakka það þeirri gríðargóðu föðurímynd sem
þau höfðu en ég var "pabbi" bekkjarins, semsagt svona gaur sem þau
áttu að tala við ef þau voru ósátt við eitthvað alveg ýkt góð
hugmynd að láta mig í það, en sem betur fer var lítið um það að þau
þyrftu að fá föðurleg ráð.
Annars er maður bara lifandi þessu rólega lífi og einbeitir sér
að því að gera sem allra minnst, það er ekki einusinni hægt að
horfa á fréttir lengur þar sem þetta Baugsmál er að gera allt
vitlaust og ég nenni ekki að fylgjast með því, nema náttúurlega
þegar það er talað um eða við Jónínu Ben sem er einn mesti höfðingi
Íslandssögunnar og ætti að vera til á hverju heimili, ég elska fólk
er frægt fyrir að vera frægt.
Já ég gleymdi næstum því að minnast á það að Pjakkur, kötturinn
sem amma og afi í Kópavogi áttu lést því miður í vikunni
aðeins 17 ára gamall (í mannsárum). Ekki það að mér hafi líkað vel
við hann síðustu svona 11 árin (hann byrjaði að verða gamall og
pirraður frekar senmma) en það var samt alltaf gaman að því að
heyra nýju mjálmin hans,sem urðu alltaf einkennilegri með hverjum
deginum og gefa honum hakk að éta því hann var svo heimskur að hann
át ekki kattamat. Já blessuð sé minning hans og vil ég benda
á að áhugasamir geta lesið allt um ævi hans á hinni stórgóðu síðu
blog.central.is/polyphonic þar sem Arinar frændi minn hefur soðið
saman ansi magnaða grein.
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
24.07.2005 20:57:57 / frimann
Jú góðan dag eða kvöld eða eitthvað. Eins og glöggir lesendur hafa
eflaust tekið eftir er ansi langt síðan maður hefur krotað eitthvað
á þessa síðu og er þetta því kærkomin viðbót í pistlaflóru þessarar
annars viðhaldsfríu síðu. Margt merkilegt og ómerkilegt hefur gerst
frá síðustu færslu og eru lesendur ýkt óheppnir að hafa ekki
tækifæri á að lesa um þau ósköp! Meðal þess helsta má nefna að ég
byrjaði að vinna aukavinnu í esso og hætti síðan aftur vegna þess
að þetta er einn skelfilegasti vinnustaður sem um getur og ríkir
algjört stjórnleysi þarna, sem er ekki gott. Annars eru flestir
dagar ansi svipaðir byggjast upp á vinnu og svefni ásamt ýmiskonar
afþreyingu t.d. að pirra lítil börn og aka eins og brjálæðingur um
götur bæjarins. Já ég gerði ansi stóra fjárfestingu um daginn og
keypti mér bíl, VW Boru árg. 2003 sem er bara ágætis ökutæki, mætti
að vísu vera á flottari felgum en það er seinni tíma vandamál,
tilhvers að gera eitthvað í dag sem þú getur gert á morgun (eða
næsta sumar) tvímælalaust besta mottó sem til er í heiminum. Í dag
var (og er) alveg sóðalega heitt á Blönduósi og um allt land held
ég bara svo ég tók þá ákvörðun að fara út að labba með agnarsmáa
barnið en þess má til gamans geta að ég hef aldrei áður gert það á
þessum tveimur árum rúmu sem hún hefur verið á meðal vor svo það
var kannski kominn tími til. Annars er ég að spá í að fara héðan út
og leita mér af afþreyingu. Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem
talar frá Blönduósi
»
17.06.2005 22:38:57 / frimann
Já komiði sælir lesendur góðir og til hamingju með 17.júní
sem er um það bil að renna sitt skeið eða svona bráðum allavegana.
Ég tók þá umdeilanlegu ákvörðun að vera á Blönduósi um helgina og
sé ég mjög mikið eftir þeirri ákvörðun núna þar sem ekki aðeins er
hundleiðinlegt veður hérna (og methiti í borg óttans) heldur er
einnig afskaplega fátt að gerast hérna öllum til mikillar undrunar.
17.júní hátíðarhöldin hér í bæ voru vægast sagt skondin þá
sérstaklega tvennt, í fyrsta lagi skrúð"gangan" þar sem saman voru
komnir á fjórða tug manns fótgangandi og 50 manns í bílum (tek það
fram að ég lét ekki sjá mig þar, fylgdist bara með úr stúkusæti,
þ.e. stofunni heima) og í öðru lagi ræða háttvirts 8. þingmanns
Norðvestur kjördæmis Jóns Bjarnasonar en ég sver það við hægri
vísifingur að það var enginn (og þá meina ég ekki nokkur maður) að
hlusta á kallinn. Ok það er væntanlega öllum alveg nákvæmlega sama
en ýkt óheppin að hafa lesið þetta.
Síðustu daga hefur verið óvenju gaman í vinnunni þar sem við
höfum verið að mála eitt stykki sjúkrahús að utan og því skora ég á
alla sem eiga leið í gegnum Blönduós að hafa orð á því við
ferðafélga sinn/sína hversu óvenju vel málað sjúkrahúsið er (tek
það samt fram að við erum ekki byrjaðir á þeirri hlið sem sést frá
þjóðveginum svo þið verðið að bíða aðeins).
Á sunnudaginn ætla ég að bregða undir mig betri fætinum og fara
til höfuðborgarinnar og vonandi fjárfesta í bíl, annaðhvort VW Boru
eða Skoda Octavia og skora ég á alla að taka þátt í
skoðanakönnuninni hér á síðunni og þar með er ég rokinn...
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Blönduósi
»
08.06.2005 22:25:03 / frimann
Góðan dag fólk. Eins og alþjóð veit er próftíðin í MA á enda og
kláraði ég mitt síðasta próf á föstudaginn og gekk bara nokkuð vel
þrjár sjöur, tvær áttur og ein nía en ég er bara frekar sáttur við
allt nema 7 í efnafræði, hefði viljað fá 8 en því miður þýðir ekki
að gráta Björn bónda. Á mánudaginn mætti ég galvaskur til vinnu á
Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi og hef gert það á hverjum degi
upp frá því og líkar ágætlega nema stundum þ.e.a.s þegar það er
kalt og ég þarf að vinna úti en það er nú bara væl. Annars
einkennast dagarnir af vinnu og svefni þessa dagana sem er ágætt.
Já heyrðu ég nenni þessu ekki lengur er að pæla í að fara að
sofa.
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Blönduósi
»
28.05.2005 23:31:45 / frimann
Nei halló mínir kæru vinir og vandamenn sem og aðrir
lesendur síðunnar sem geta ekki séð sér fært að flokka sig sem mína
vini eða vandamenn. Eins og komið var inná í síðusta pistli er
próftíðin í sögulegu hámarki þessa stundina nemendum til ómældrar
ánægju, þá einkum og sér í lagi nemendum á þriðja ári
náttúrufræðibrautar sem virðast ansi margir eiga það sameiginlegt
að vera miður góðir í eðlisfræði og er ég engin undantekning. Ég
hafði að vísu álitið mig ágætan í þessu en við nánari skoðun kom í
ljós að ég kann harla fátt í þessu og er ég því svo sannarlega ýkt
óheppinn, en prófið er ekki fyrr en á föstudaginn svo það er tæp
vika sem maður hefur til stefnu og þetta stendur allt til bóta.
Í gærkvöldi ætlaði ég að snúa sólarhringnum á réttan kjöl aftur
(en ég hafði einmitt snarsnúið honum við þegar ég lærði fyrir
frönsku og líffærafræði) en það gekk ansi illa... já ég sé núna
eftir því að hafa skrifað þetta, góð saga!!! ég er hættur við að
klára hana.
Á morgun verður mikill tyllidagur hjá mér hann mun væntanlega
enda í eðlisfræðilærdómi og líka smá stærðfræði en það er nú bara
aukaatriði. Ég hef tekið þá ákvörðun að byrja með svona lag dagsins
eins og flestar gelgjur þessa lands eru með á bloggsíðunum sínum og
vona ég að lesendur muni taka vel í þessa nýbreytni.
Lag dagsins: Á pöbbinn með Ríó Tríó
Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Akureyri
»
Síður: 1 2 3
|
|